Þá eru jólin búin (að mestu).
Ég fór í Húsasmiðjuna og var dálítið leið, eins og oft áður yfir því hvernig jólin fara á útsölu fyrsta opnunardag eftir hátíðar.
Allt í einu var allt skrautið fyrir, þurfti að losna við það sem fyrst á niðursettu verði.
Þetta á svosem við um mest af þeim vörum sem auglýstar eru til gjafa fyrir jól. Það er dálítið svekkjandi að kaupa hlut á Þorlák, gefa í jólagjöf á aðfangadag og sjá svo sama hlut á hálfvirði 27. des.
Sennilega er best að gefa upplifun eða gjafakort. Það hrapar yfirleitt ekki svona í verði.
Category: Hugleiðingar