Mynd af vettlingunum
|

Reiðvettlingarnir klárir (uppskriftin)

Fyrir nokkru minntist ég á að mögulega væri uppskrift fyrir reiðvettlinga að raungerast.

Það hefur nú orðið og vettlingarnir komnir á Ravelry https://www.ravelry.com/patterns/library/riding-mittens-felted og Disaknit https://disaknit.is/product/reidvettlingar/.

Þessi vegferð var ekki alveg tíðinda- eða sársaukalaus eins og gengur en að lokum, með góðra prjónara hjálp, tókst að ljúka verkinu.

Þá er bara að taka fram plötulopasafnið og grófu prjónana og jólagjöfin handa hestamanneskjunni er í höfn:)

Similar Posts

  • Brauðpoki

    Brauð er oft geymt í plastpokum, stundum í brauðkössum eða skúffum. Í framhaldi af saumum á vaxbornum klútum, fannst mér rétt að prófa að gera vaxborinn brauðpoka. Í hann notaði ég efni úr sængurveri sem hafði lokið sinni þjónustu með sóma, reif efnið svo það væri þráðrétt, saumaði hliðarnir með skyrtusaumi (fyrst rangan saman, sauma…

  • Eyjabúar

    Eyjabúar eru um margt aðeins öðruvísi en fólk sem lifir á meginlandi. Hafa þurft um aldir að treysta á eigin bjargir, oft við erfiðar aðstæður.  Við þekkjum þetta vel Íslendingar og mögulega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst ekki margt ómögulegt. Við bara vöðum í verkið og framkvæmum það og skiljum…

  • Hekluð göt

    Pinterest er óendanleg uppspretta skemmtilegra uppskrifta og hugmynda. Tíminn flýgur á meðan maður flettir gegnum hvert undrið af öðru og óskar þess að hafa allan tímann í veröldinni til að prjóna, hekla og föndra þetta allt. Undanfarið hef ég sé eitthvað sem líkist hálfkláruðum götóttum peysum. Eiginlega ermum með smáparti af bol. Mér datt helst…

  • |

    Jólapeysubull

    Ég hef dálítið gaman af bulli, bæði í orði og gerðum. Ekki síst í handverki, prjóni og bútasaumi. Nema hvað. Í nóvember (stundum fyrr) fara að birtast myndir af frábæru jólahandverki af öllum stærðum og gerðum. Föndri, saumaskap, hekli og prjóni. Það koma myndir af fjölskyldum og jafnvel heilu vinnustöðunum í jólapeysum sem hafa verið…

  • Bananasokkar

    Hvað eiga bananar og sokkar sameiginlegt? Ekki mikið, svona við fyrstu sýn en skoðum málið betur. Þegar maður prjónar sokka, þá eru þeir í raun eins konar túba með smá útvexti fyrir hælinn. Bestu sokkarnir eru auðvitað þeir sem passa best á fótinn og internetið, tölvur, símar, bókasöfn og heimili prjónara eru full af allskonar…

  • Sokkar

    Ég hef gaman af að prjóna en prjóna sjaldan sokka. Það er sennilega vegna þess að a) gamlar minningar um sokkaprjón í barnaskóla ásækja mig og b) mér gengur illa að láta sokkana verða jafnstóra.  Það er auðvitað hægt með því að telja umferðir en flestar uppskriftir segja til um að mæla sm. Það gengur…