Afgangapeysa

Afgangarnir góðu

Ef þú lesandi góður stundar einhverjar hannyrðir, ekki síst ef það er hekl eða prjón, er nokkuð víst að þú á afganga af garni. Almennt ganga þessir afgangar undir nafninu „stassið mitt“ (my stash) og af því þeir eru gjarnan allskonar og ég meina allskonar, þá er stundum erfitt að finna þeim stað í nýju verkefni. Ekki síst þegar nýtt, óábyrjað garn kallar og nýjasta uppskriftin sem maður keypti bíður eftir því að verða prjónuð.

Auðvitað höfum við alltaf notað afganga. Í vettlinga, sokka og allt mögulegt. Og síðustu árin hefur verið vinsælt að prjóna afgangapeysur. Frægar afgangapeysur eru t.d. Sea glass frá Wool and pine, og peysurnar hinnar dönsku Lærke Bagger sem fara alla leið…Textílbarinn hefur gengið á undan með góðu fordæmi hér á landi og hefur sýnt góða takta í að nota garn sem annars færi ef til vill í súginn…

En það þora ekki allir eða veigra sér við að byrja afgangaprjón sem endar í heilli flík. Mér finnst það skemmtilegt og er löngu hætt að hugsa um hvaða garn ég nota, hvort eitthvað á því á saman eða ekki og byrja bara að prjóna. Oft með einhverja óljósa hugmynd um hvað ég ætla að gera en oftar ekki.

Þannig urðu til dæmis gula peysan  „gult er ekki bara gult“, sem minnir á baráttu þeirra sem eiga við andlega erfiðleika að etja, til. Líka bláa peysan „Frost“ sem er í allskonar bláum litum með silfurþráðum (líka allskonar) og ég nota mikið. 

Svo er ekta afgangapeysan sem er úr allskonar garni og litum sem ég bara batt saman og gekk ekki frá neinum endum í (efsta myndin) og um jólaleytið urðu til tvær barnapeysur eða kápur úr margs konar garni og gullþráður og loðgarn gerðu þær að jólaflíkum. Sem ég er reyndar dáldið montin af og finnst gaman að sjá skotturnar mínar í þeim. Ég á reyndar eina svona líka en hún er ekki næstum jafn flott og þeirra!

Og þá er spurningin – til ykkar sem kannski þorið ekki að stíga skrefið en eigið afgang og langar að nota – viljið þið hittast og byrja? E.k. óreglulegt samprjón?

Ég er til og get ausið úr skálum reynslunnar.

Similar Posts