Eins konar Frozen peysa

Ég hef gaman af því að prjóna. Held að það sé ekki hægt að neita því og sumir telja kannski að ég sé prjónaóð.  Nema hvað, reglulega (lesist daglega) fyllist ég þörf fyrir að prjóna eitthvað ákveðið og í þessari viku var það Frozen peysa á yngstu barnabörnin mín...

Prjónaðir inniskór

Sokkar og skór eru ekki í sérstöku uppáhaldi hjá undirritaðri sem notar hvorutveggja eins lítið og hægt er. Sokkarnir fjúka í síðasta lagi í lok mars og koma ekki aftur úr skúffum fyrr en í fyrsta lagi í október. Þá meira að segja sjaldan. Skór eru ívið meira notaðir,...

Léttlopi

Stundum dettur manni einhver vitleysa í hug og ég er þeirrar gerðar að framkvæma strax, oft áður en maður hugsar til enda.  Í langan tíma hef ég átt erfitt með að prjóna úr lopa, hóstað og hnerrað og ég veit ekki hvað. Lopinn íslenski er afar áferðarfallegur...

Eyjabúar

Eyjabúar eru um margt aðeins öðruvísi en fólk sem lifir á meginlandi. Hafa þurft um aldir að treysta á eigin bjargir, oft við erfiðar aðstæður.  Við þekkjum þetta vel Íslendingar og mögulega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst ekki margt ómögulegt. Við...