Hvar er best að prjóna? Á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn?

Það fór ekkert illa um prjónarann þennan ágæta fimmtudag í september, sitjandi á bekk á Ráðhústorginu. Dúfurnar komu og kíktu eftir mat, börn af öllum stærðum streymdu framhjá í hinu ýmsu erindagerðum og flestir bekkir voru setnir af fólki á mismunandi aldri, stærð og gerð.

Verðrið var bara fínt, 18 gráður og sólarlaust að mestu. Dálítil gola en hún var góð til að flytja burt tóbaksreyk (mikið um reykingar í Danaveldi ennþá) þegar einhver gekk framhjá með logandi snuddu í munninum.

Dagurinn var semsagt bara ágætur, enda ætlaður til slökunar og labbitúrs í kóngsins Köben eftir dálítið strembna tvo daga á undan, með löngum fundahöldum þar sem athyglin þurfti að vera til staðar.

Engin lýsing til

Similar Posts

  • Brauðpoki

    Brauð er oft geymt í plastpokum, stundum í brauðkössum eða skúffum. Í framhaldi af saumum á vaxbornum klútum, fannst mér rétt að prófa að gera vaxborinn brauðpoka. Í hann notaði ég efni úr sængurveri sem hafði lokið sinni þjónustu með sóma, reif efnið svo það væri þráðrétt, saumaði hliðarnir með skyrtusaumi (fyrst rangan saman, sauma…

  • Eyjabúar

    Eyjabúar eru um margt aðeins öðruvísi en fólk sem lifir á meginlandi. Hafa þurft um aldir að treysta á eigin bjargir, oft við erfiðar aðstæður.  Við þekkjum þetta vel Íslendingar og mögulega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst ekki margt ómögulegt. Við bara vöðum í verkið og framkvæmum það og skiljum…

  • |

    Einfaldasta sokkauppskrift í heimi

    Fallegir handprjónaðir sokkar úr góðu garni eru augnayndi og dásamlegir á fæti. Margir prjónarar eru meistarar í sokkaprjóni og framleiða hvert parið á fætur öðru og sýna stundum afraksturinn í stórum og litlum hópum á samfélagsmiðlum.  Aðrir, minna megnugir horfa með andakt og óska þess að vera í þessum flotta hópi en komast kannski aldrei…