Hótel Rangá
|

Hvar er best að prjóna? Hótel Rangá?

Á fallegum haustdegi um miðjan september var prjónarinn staddur á lúxushótelinu Rangá, sem eins og nafnið gefur til kynna, er í Rangárvallasýslu.
Dvölin hófst eftir hádegi á laugardegi og fyrst var prófað að prjóna innivið.

Margir góðir staðir fundust enda þægilegir stólar víða í húsinu. Þessi skemmtilegi körfustóll er vel staðsettur og þótti upplagt að prófa hann. Hann var sæmilegur en vantaði stuðning við bakið. Það hefði auðvitað verið hægt að fara innar og krossleggja fæturna en það tókst ekki alveg. 

Eftir dásemdarpottaferð að loknum morgunverði á sunnudagsmorgni þar sem sólin skein eins og enginn væri morgundagurinn, var prófað að setjast á bekk fyrir framan herbergið. Útsýnið skemmdi ekkert fyrir og bekkurinn reyndist bara vel. Í það minnsta voru nokkrar umferðir prjónaðar og raunar var dálítið erfitt að kveðja bekkinn þegar að heimferð kom. En allt gaman tekur enda um síðir og víst er að enginn þarf að fara óprjónaður af hótel Rangá. 

Similar Posts

  • Bananasokkar

    Hvað eiga bananar og sokkar sameiginlegt? Ekki mikið, svona við fyrstu sýn en skoðum málið betur. Þegar maður prjónar sokka, þá eru þeir í raun eins konar túba með smá útvexti fyrir hælinn. Bestu sokkarnir eru auðvitað þeir sem passa best á fótinn og internetið, tölvur, símar, bókasöfn og heimili prjónara eru full af allskonar…

  • |

    Jólapeysubull

    Ég hef dálítið gaman af bulli, bæði í orði og gerðum. Ekki síst í handverki, prjóni og bútasaumi. Nema hvað. Í nóvember (stundum fyrr) fara að birtast myndir af frábæru jólahandverki af öllum stærðum og gerðum. Föndri, saumaskap, hekli og prjóni. Það koma myndir af fjölskyldum og jafnvel heilu vinnustöðunum í jólapeysum sem hafa verið…

  • Sokkar

    Ég hef gaman af að prjóna en prjóna sjaldan sokka. Það er sennilega vegna þess að a) gamlar minningar um sokkaprjón í barnaskóla ásækja mig og b) mér gengur illa að láta sokkana verða jafnstóra.  Það er auðvitað hægt með því að telja umferðir en flestar uppskriftir segja til um að mæla sm. Það gengur…

  • Eyjabúar

    Eyjabúar eru um margt aðeins öðruvísi en fólk sem lifir á meginlandi. Hafa þurft um aldir að treysta á eigin bjargir, oft við erfiðar aðstæður.  Við þekkjum þetta vel Íslendingar og mögulega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst ekki margt ómögulegt. Við bara vöðum í verkið og framkvæmum það og skiljum…