Ævintýrið Frozen hefur farið sigurför um jörðina svo ekki sé meira sagt. Litlir kollar grúfa sig yfir allskonar tæki til að horfa á myndina, læra fjölda söngva utanað og svo er dansað við tónlistina.Amman og prjónadellukonan varð auðvitað að prjóna peysu sem hæfir...
Þessar grifflur urðu til í heimsókn – mest af því að ég nennti ekki að klára vettlingana sem ég var að prjóna og fitjaði upp á nýju verkefni. Þær eru fljótprjónaðar, svona nokkurn veginn ein heimsókn með góðu spjalli:). Uppskriftin er einföld. Prjónar nr. 3.5 og...
Fyrir allmörgum árum, fleirum en ég kæri mig um að muna, gerði ég nokkrar uppskriftir fyrir Lopa sf sem þá seldi lopa. Ég var löngu búin að gleyma þessum uppskriftum en rakst á þær um daginn hjá góðri prjónavinkonu. Mér fannst þessar uppskriftir (mynstrin)...
„Jæja, best að ljúka við jólasöguna og senda jólakortin“ hugsa ég í svefnrofunum og renni yfir nöfnin viðtakenda í huganum. Það er mánudagur og þá er ég í fríi frá vinnu, að minnsta kosti í orði kveðnu. Reyndar tveir netfundir og sjálfsagt nokkur símtöl,...
Ég hef gaman af að prjóna en prjóna sjaldan sokka. Það er sennilega vegna þess að a) gamlar minningar um sokkaprjón í barnaskóla ásækja mig og b) mér gengur illa að láta sokkana verða jafnstóra. Það er auðvitað hægt með því að telja umferðir en flestar uppskriftir...