Einnar heimsóknar grifflur

Þessar grifflur urðu til í heimsókn – mest af því að ég nennti ekki að klára vettlingana sem ég var að prjóna og fitjaði upp á nýju verkefni. Þær eru fljótprjónaðar, svona nokkurn veginn ein heimsókn með góðu spjalli:).

Uppskriftin er einföld. Prjónar nr. 3.5 og garn sem hentar þeim grófleika. Ég notaði ítalskt merino garn sem ég uppgötvaði nýlega að fæst í Gallery spuna en ég hafði keypt áður á Ítalíu. Þetta er dásemdar garn svo ekki sé meira sagt.

Nema hvað, ég fitjaði upp 40 L, prjónaði 2 x 2 stroff í 24 umf. Gerði þá úrtöku fyrir þumal 1. 1 br. L, slá uppá, prj. 1 L, slá uppá, ein br. L.
2. Prjóna að útaukningu – prjóna þá 1 br. L, 3 sl (prjóna í bandið frá fyrri umferð), 1 br. L.
3. 1 br. L, slá uppá, 3 sl. L., slá uppá, 1 br. L
4. Eins og umf 2 nema hvað nú eru 5 L sl.
Halda þessu áfram þar til 19 L eru sléttar í útaukningunni. Prjóna 3 umf. í viðbót án útaukninga.
Í næstu umferð eru þumallykkjurnar felldar af og haldið áfram að prjóna í hring 2 sl., 2 br. 6 umferðir. Fellt af.

Similar Posts

  • Bananasokkar

    Hvað eiga bananar og sokkar sameiginlegt? Ekki mikið, svona við fyrstu sýn en skoðum málið betur. Þegar maður prjónar sokka, þá eru þeir í raun eins konar túba með smá útvexti fyrir hælinn. Bestu sokkarnir eru auðvitað þeir sem passa best á fótinn og internetið, tölvur, símar, bókasöfn og heimili prjónara eru full af allskonar…

  • Sokkar

    Ég hef gaman af að prjóna en prjóna sjaldan sokka. Það er sennilega vegna þess að a) gamlar minningar um sokkaprjón í barnaskóla ásækja mig og b) mér gengur illa að láta sokkana verða jafnstóra.  Það er auðvitað hægt með því að telja umferðir en flestar uppskriftir segja til um að mæla sm. Það gengur…

  • Afgangarnir góðu

    Ef þú lesandi góður stundar einhverjar hannyrðir, ekki síst ef það er hekl eða prjón, er nokkuð víst að þú á afganga af garni. Almennt ganga þessir afgangar undir nafninu „stassið mitt“ (my stash) og af því þeir eru gjarnan allskonar og ég meina allskonar, þá er stundum erfitt að finna þeim stað í nýju…

  • Eyjabúar

    Eyjabúar eru um margt aðeins öðruvísi en fólk sem lifir á meginlandi. Hafa þurft um aldir að treysta á eigin bjargir, oft við erfiðar aðstæður.  Við þekkjum þetta vel Íslendingar og mögulega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst ekki margt ómögulegt. Við bara vöðum í verkið og framkvæmum það og skiljum…

  • |

    Hvar er best að prjóna – Höfuðstöðin

    Í paradísinni Elliðaárdal er margt að finna. Skemmtilegar gönguleiðir, Elliðaá, rjóður og oftast nær slatta af fólki. Ofarlega í dalnum hvílir lítil íbúðabyggð og enn ofar Árbæjarsafn sem geymir gömul hús og magnaða sögu. Í Ártúnsbrekkunni sem liggur meðfram dalnum er Höfuðstöðin, lítið og krúttlegt kaffi- og menningarhús þar sem á laugardögum koma saman börn…