|

Dralonkjóllinn

Í eldgamla daga, kringum 1970, þurfti maður stundum að skreppa á ball. Og ef maður fer á ball, þá þarf maður kjól (eða þurfti amk þá). Þá voru góð ráð dýr því buddan var þunn og oftar en ekki galtóm hjá unglingnum og kjólar dýrir. 

En stelpan kunni að hekla og það var hægt að kaupa sæmilega ódýrt garn.  Dralon garn.

Það var þeim kostum búið (nokkuð sem maður vissi ekki endilega þá) að það teygðist endalaust. Þannig þurfti í raun að teygja allt garnið áður en prjónað eða heklað var úr því og oftast gerði maður það jafnóðum. 

En það var lexía sem ég lærði eftir að ég heklaði þennan flotta kjól sem eins og sést á myndinni, var ekkert mjög síður…

Við vorum tvær vinkonurnar sem ákváðum semsagt að morgni að fara á ball um kvöldið og settumst við að hekla kjólinn í einhverri samvinnu. Engin uppskrift og bara heklað eftir því sem okkur fannst passa. Og kjóllinn passaði svona ljómandi vel og ballið var agalega skemmtilegt.

En í hvert sinn sem ég fór í kjólinn og ekki síður ef hann var þveginn, þá síkkaði hann talsvert og það þurfti að rekja neðan af honum. Að lokum gafst ég upp á honum og rakti hann allan upp og notaði þetta fína garn (það var stíft og svooo mikið gervi að það var næstum eins og að vera með nælonnet í höndunum:), í annað. Í hvað man ég hinsvegar ekki..en þessi mynd er til sönnunar um að kjóllinn var til.

Similar Posts